Geir ÞH 150 með ágæta netavertíð í Breiðafirði

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Geir ÞH 150 er kominn heim til Þórshafnar eftir netavertíð í Breiðafirði en róið var frá Grundarfirði eins og undanfarnar vertíðir. Á Fésbókasíðu Geirs ÞH 150 segir að vertíðin hafi verið ágæt. Vindasamur febrúar gaf þeim 220 tonn í 19 róðrum en nokkrir blíðudagar í mars … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 með ágæta netavertíð í Breiðafirði

Björg EA 7 á toginu við Eldeyjarboða

2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessa mynd í gær af Samherjatogaranum Björgu EA 7 á miðunum við Eldeyjarboða. Björg EA 7 kom til heimahafnar á Akureyri um hádegisbil þann 31. október 2017. Hún var fjórða og síðust í röð systurskipa sem  smíðuð  voru … Halda áfram að lesa Björg EA 7 á toginu við Eldeyjarboða

Arnfirðingur RE 212

11. Arnfirðingur RE 212 . Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Arnfirðingur RE 212 var smíðaður í Bolsönes Verft, Molde í Noregi árið 1963 fyrir Arnarvík h/f. Arnfirðingur RE 212 var 30,50 metrar á lengd, 6,87 á breidd og 3,50 metrar á dýpt. Vélin er Lister Blackstone, 660 hestöfl. Hann var lengdur árið 1966 og yfirbyggður 1977. Vísir … Halda áfram að lesa Arnfirðingur RE 212

Gísli Súrsson GK 8 kemur til Grindavíkur í dag

2878. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu af línubátnum Gísla Súrssyni GK koma til hafnar í Grindavík síðdegis í dag. 2878. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Ljósmyndarinn sagði að það hefði verið bölvað skítviðri og mígandi rigning. 2878. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Jón Steinar … Halda áfram að lesa Gísli Súrsson GK 8 kemur til Grindavíkur í dag

Hulda GK 17 verður Hafrafell SU 65.

2912. Hulda HF 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Samkvæmt vef Fiskistofu hefur línubáturinn Hulda GK 17, áður HF 27, fengið nafnið Hafrafell SU 65 og er í eigu Háuaxlar ehf. á Fáskrúðsfirði. Báturinn hét upphaflega Oddur á Nesi SI 76 og var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir BG Nes ehf . Hann kom til … Halda áfram að lesa Hulda GK 17 verður Hafrafell SU 65.

Gunnar Bjarnason SH 25

144. Gunnar Bjarnason SH 25 ex Hagbarður KE 116. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér er Gunnar Bjarnason SH 25 á síldarvertíð austanlands um árið, Hreiðar Olgeirsson skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44 tók myndina. Gunnar Bjarnason var smíðaður í Noregi 1963 fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík. Hann nefndi bátinn Loft Baldvinsson EA 124. Síðar hét hann Baldur … Halda áfram að lesa Gunnar Bjarnason SH 25

Sider Sonja við Bökugarðinn

Sider Sonja við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Flutningaskipið Sider Sonja kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað árið 2008 og mælist 5,629 GT að stærð, er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Nánar tiltekið trjádrumba. Lengd skipsins er 109 metrar og breiddin er 19 metrar. Það siglir … Halda áfram að lesa Sider Sonja við Bökugarðinn

Nesfiskur hefur gert kauptilboð í Hvanney og Steinunni

2403. Happasæll KE 94. Í dag Hvanney SF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Nesfiskur hf. í Garði hefur gert kauptilboð í tvö skip í eigu Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði.  Fiskifréttir greina frá þessu í nýjasta tölublaði sínu en um er að ræða Hvanney SF 51 og Steinunni SF 10. Bæði skipin eru um 29 metrar á … Halda áfram að lesa Nesfiskur hefur gert kauptilboð í Hvanney og Steinunni

Odd Lundberg og Rav í Skagen

Odd Lundberg T-55-G. Ljósmynd Anna Ragnarsdóttir 2019. Síðunni bárust myndir frá Skagen í Danmörku sem sýna tvö uppsjávarveiðiskip sem eru í smíðum fyrir Norðmenn. Þetta eru Odd Lunnberg T-55-G sem er með heimahöfn í Harstad og Rav TR-4-O sem er með heimahöfn í Þrándheimi. Rav TR-4-O. Ljósmynd Anna Ragnarsdóttir 2019. Rav er öllu stærra að … Halda áfram að lesa Odd Lundberg og Rav í Skagen