IMO 9211078. Fri Kvam við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessa mynd í gær af flutningaskipinu Fri Kvam sem kom til Grindavíkir með saltfarm fyrir Saltkaup. Skipið, sem var smíðað árið 2000 hjá Volharding Shipyard Waterhuizen í Hollandi, er skráð á Kýpur með heimahöfn í Limasol. Það er 89,7 metrar … Halda áfram að lesa Fri Kvam losar salt í Grindavík
Month: apríl 2020
Þorbjörg ÞH 25
2588. Þorbjörg ÞH 25 ex Þorbjörg RE 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppubáturinn Þorbjörg ÞH 25 kemur hér að landi á Raufarhöfn í gær en hún er í eigu Æðarsker ehf. og er með heimahöfn á Kópaskeri. Þorbjörg ÞH 25 hét upphaflega Björn Kristjónsson SH 165 frá Ólafsvík. Báturinn er af gerðinni Sómi 865 og … Halda áfram að lesa Þorbjörg ÞH 25
Björg EA 7 að veiðum í morgun
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir um kl. 7 í morgun og sýna þær Samherjatogarann Björgu EA 7 að veiðum sunnan við Surtsey. Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra systurskipa sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi … Halda áfram að lesa Björg EA 7 að veiðum í morgun
Geir ÞH 150 á netaralli
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Geir ÞH 150 frá Þórshöfn kom til Húsavíkur í kvöld en hann er á netaralli fyrir Hafró. Geir ÞH 150 var smíðaður hjá Ósey í Hafnarfirði árið 2000 og mælist 115,7 brl. að stærð. Báturinn hefur reynst mjög vel og fiskað mikið en eigandi hans er Geir … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 á netaralli
Björn Hólmsteinsson ÞH 164
2641. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 ex Sæborg SU 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 sést hér á þessum myndum koma til hafnar á Raufarhöfn í dag en hann er á grásleppunetum þessa dagana. Það er Hólmsteinn Helgason ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti bátinn til Raufarhafnar í ársbyrjun 2014 en … Halda áfram að lesa Björn Hólmsteinsson ÞH 164
Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana
Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann á Húsavík þessa dagana og ekki amalegt að kíkja á bryggjuna í vorblíðunni líkt og í dag. Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505 komu að landi á sama tíma en Guðmundur A. Hólmgeirsson gerir Aron … Halda áfram að lesa Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana
Kap II VE 7
1062. Kap II VE 7 ex Kap II VE 444. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Þegar Frosti ÞH 229 var á leiðinni á miðin í morgun, nánar tiltekið á Selvogsbankann, varð Kap II VE 7 á vegi þeirra og Gundi tók þessar myndir sem nú birtast. Kap II VE 7 var smíðuð í Stálvík árið … Halda áfram að lesa Kap II VE 7
Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði
TFXY. Skarðsvík SH 205. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Hér liggur Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði, vel hlaðin af síld. Myndina tók Hannes Baldvinsson. Skarðsvík þessi átti sér ekki langa sögu, var smíðuð 1960 í Danmörku fyrir Sigurð Kristjónsson ofl. en eigandi frá 8. maí 1961 var Skarðsvík h/f á Rifi á Snæfellsnesi. Skarðsvík var 86 brl. að … Halda áfram að lesa Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði
Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.
2870. Anna EA 305 ex Carimsa Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línu- og netaskipið Anna EA 305 liggur hér við bryggju og bíður þess sem verða vill, hvað svo sem það verður. Myndin var tekin í gær. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 … Halda áfram að lesa Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.
Wilson Cork kom með áburð
IMO 9178460. Wilson Cork. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Cork kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Norðurgarðinum þar sem skipað verður upp áburði. Wilson Cork siglir undir fána Barbadoseyja og er með heimahöfn í Bridgetown. Skipið, sem er 99,9 metrar að lengd og 12,8 metra breitt, mælist 2,999 brúttótonn að stærð. Það … Halda áfram að lesa Wilson Cork kom með áburð









