Remøy M-99-HØ, einn sá alflottasti

IMO: 9660451. Remøy M-99-HØ. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. "Remøy er einn sá alflottasti" sagði Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking þegar hann sendi þessar myndir sem hann tók fyrir stundu nyrst í norsku lögsögunni. Frystitogarinn Remøy var smíðaður árið 2013 og hét upphaflega Hopen. Árið 2016 fær hann nafnið Remøy og er hann með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Remøy M-99-HØ, einn sá alflottasti

Warnowborg á Húsavík

IMO 9505572. Warnowborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Warnowborg kom í morgun til Húsavíkur og lagðist að Bökugarðinum þar sem nú er verið að skipa upp hraéfnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2011 og er 107 metra langt. Breidd þess er 18 metrar og það mælist 6,668 brúttótonn að stærð. Warrowborg siglir … Halda áfram að lesa Warnowborg á Húsavík

Loran við bryggju í Tromsø

IMO 9191357. Loran M-12-G. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum af norska línu- og netaskipinu Loran M-12-G frá Álasundi við bryggju í Tromsø Loran er 51 metrar að lengd, 11 metra breiður og mælist 1,292 brúttótonn að stærð. Skipið var smíðað í Solstrand AS árið 1999. Með því að smella … Halda áfram að lesa Loran við bryggju í Tromsø

Tryllir á grásleppuveiðum

6998. Tryllir GK 600 ex Tryllir RE 600. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar sendi drónann á loft í morgun til að mynda grásleppubátinn Trylli GK 600 sem var að veiðum rétt vestan Grindavíkur. Það eru feðgarnir Hafsteinn Sæmundsson og Heimir Örn Hafsteinsson sem róa Trylli en Hafsteinn, sem er 84 ára, er eigandi bátsins. Tryllir … Halda áfram að lesa Tryllir á grásleppuveiðum

Volstad M-11-A

IMO: 9652818. Volstad M-11-A. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Frystitogarinn Volstad M-11-A frá Álasundi var á leið til hafnar í Tromsø sl. fimmtudag og þá tók Eiríkur Sigurðsson þessar myndir. Volstad, sem er í eigu samnefnds fyrirtækis, var smíðað í í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent árið 2013. Togarinn er 74,70 metrar að lengd, 15,40 metra … Halda áfram að lesa Volstad M-11-A

Norðingur KG 21 landaði kolmunna á Fáskrúðsfirði

9281633. Norðingur KG 21 ex Ruth. Ljósmynd Óðinn Magnason 2020. Færeyska skipið Norðingur kom inn til löndunar á Fáskrúðsfirði í gær, sumardaginn fyrsta með um 1781 tonn af kolmunna. Nordingur, sem hefur heimahöfn í Klakksvík, var smíðaður hjá Fitjar Mek. Verkstad í Noregi árið 2003. Skipið er 68,8 metrar að lengd, 13,8 metra breitt og mælist … Halda áfram að lesa Norðingur KG 21 landaði kolmunna á Fáskrúðsfirði

Björn Jónsson ÞH 345

7461. Björn Jónsson ÞH 345 ex Arnar SH 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppubáturinn Björn Jónsson ÞH 345 kemur hér að landi á Raufarhöfn í vikunni en það er Útgerðarfélagið Röðull ehf. sem gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Jói á Nesi II SH 259 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar fyrir Pétur F. Karlsson … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345

J Bergvoll T-1-H

IMO 9214501. J Bergvoll T-1-H. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók þessa mynd af norska frystitogaranum J Bergvoll í Tromsø í dag. J Bergvoll var smíðaður árið 2000 í Solstrand AS í Tomrefjord og afhentur þaðan í júlí það. Hann hafði smíðanúmer 69. Togarinn var smíðaður fyrir Nergård Havfiske AS … Halda áfram að lesa J Bergvoll T-1-H