2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson skipverji á Ljósafellinu SU tók þessa mynd á dögunum af togskipinu Pálínu Þórunni GK 49 frá Sandgerði. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en eins og margir vita keypti Nesfiskur hf. hana af Skinney-Þinganesi hf. í fyrra. … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn á toginu
Day: 20. mars, 2020
Sleipnir
2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sleipnir, hafnarbátur Hafnarsamlags Norðurlands, siglir hér til móts við flutningaskip sem kom til Húsavíkur í vikunni. Sleipnir var smíðaður á Akureyri árið 1995 og er 41 BT að stærð. Togkraftur hans er 11,2 tonn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Sleipnir
Þrasi VE 20
6776. Þrasi VE 20 ex Láki ÁR 12. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Þrasi VE 20 varð fyrir linsunni hjá Hólmgeir Austfjörð í gær en báturinn er af Sómagerð. Smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1986. Báturinn, sem er tæplega 6 brl. að stærð, var fyrst gerður út frá Ólafsvík undir nafninu Eddi SH 101. … Halda áfram að lesa Þrasi VE 20


