
Á þessum myndum Barkar Kjartanssonar má sjá kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn við veiðar á Skjálfanda.
Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína.
Í dag heitir skipið Grettir BA 39 og var því breytt í þangskurðarskip í Slippnum á Akureyri. Grettir kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reykhólum í maímánuði 2011.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution