Saxhamar SH 50 á netaralli

1028. Saxhamar SH 50 ex Sjöfn EA 142. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Saxhamar SH 50 kemur hér til hafnar í Sandgerði en hann er þessa dagana á svokölluðu netaralli fyrir Hafró. Elvar Jósefsson tók þessa mynd um kvöldmatarleytið í gær en Saxhamar sinnir SV. svæðinu í netarallinu. Saxhamar sem Útnes ehf. á og gerir út … Halda áfram að lesa Saxhamar SH 50 á netaralli

Fengur ÞH 207 á landleið í dag

2125. Fengur ÞH 207 . Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Hér siglir grásleppubáturinn Fengur ÞH 207 með Látraströndinni á leið sinni til hafnar á Grenivík eftir að hafa dregið netin við Flatey. Það eru feðgarnir Jón Þorsteinsson og Víðir Örn sonur hans sem róa á Feng og að sögn Víðis hafa aflabrögð verið ágæt. Fengur … Halda áfram að lesa Fengur ÞH 207 á landleið í dag

Arne kom til Húsavíkur í morgun

Arne ex Marneborg við komuna til Húsavíkur í morgun. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Flutningaskipið Arne kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka en hann samanstóð af tjrádrumbum og kurli. Það var logn og fallegt um að líta við Skjálfanda þegar þetta 134 metra langa og 16 metra breiða kom að Bökugarðinum. Það … Halda áfram að lesa Arne kom til Húsavíkur í morgun

Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

1585. Sturlaugur H Böðvarsson AK 10 ex Sigurfari II SH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sturlaugur H Böðvarsson AK 105, áður AK 10, hefur fengið nafnið Mars RE 13 samkvæmt vef Fiskistofu. Morgunblaðið greinir frá því í dag að Útgerðarfélag Reykjavíkur hafi keypt togarann af HB Granda hf. í byrjun febrúar. Sturlaugur H fór sína … Halda áfram að lesa Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

Snæfugl SU 20 á Breiðdalsvík

258. Snæfugl SU 20 við bryggju á Breiðdalsvík. Ljósmynd Sigurður Þorleifsson. Hér birtast þrjár myndir úr safni Sigurðar Þorleifssonar frá Karlsstöðum í Berufirði og sýna Snæfugl SU 20 við bryggju á Breiðdalsvík á síldarárunum. Snæfugl SU 20 var smíðaður árið 1964 í Florø í Noregi og kom til Reyðarfjarðar 6. mars það ár. 14. apríl … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20 á Breiðdalsvík

Sighvatur GK 57 á leið í róður

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Það er dulúð yfir þessari flottu mynd sem Jón Steinar tók þegar Sighvatur GK 57 lagði upp í línuróður á dögunum. Rigningarsuddi sólarlagið gerir hana svo flotta og ekki skemmir skipið fyrir. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57 á leið í róður

Gullfaxi GK 14 á endastöð

297. Gullfaxi GK 14 ex Eldhamar II GK 139. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hér er Gullfaxi GK 14 kominn á endastöð í fjörunni í Grindavík þar sem hann var rifinn vorið 2008. Upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 eins og kom fram hér á síðunni fyrir stuttu. Smíðaður 1956 fyrir Svein Magnússon útgerðarmann í Neskaupstað hjá … Halda áfram að lesa Gullfaxi GK 14 á endastöð

Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker

2047. Sæbjörg EA 184 ex Linni SH 303. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Grímseyjarbáturinn Sæbjörg EA 184 er á þorskanetum og rær þessa dagna frá Kópaskeri við Öxarfjörð. Og þar tók Gaukur Hjartarson þessa mynd þar sem kallarnir eru að leggja trossu í hafið. Sæbjörg EA 184 hét upphaflega Magnús Guðmundsson ÍS 97 frá Flateyri en … Halda áfram að lesa Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker

Vigri RE 71 að veiðum

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér birtist frystistogarinn Vigri RE 71 en myndirnar sýna hann að veiðum á Heimsmeistarahrygg í Skerjadýpi sl. fimmtudag. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 að veiðum