Reynir GK 47

733. Reynir GK 47 ex Reynir ÁR 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Reynir GK 47 kemur hér til hafnar í Grindavík um miðbik níunda áratugs síðustu aldar.

Báturinn hét upphaflega Reynir VE 15, smíðaður í Strandby í Danmörku árið 1958. Hann var 72 brl. að stærð. Eigendur hanns voru Páll og Júlíus Ingibergssynir frá Hjálmsholti í Vestmannaeyjum.

Síðar hét hann Reynir ÁR 18, Reynir AK 18, Reynir GK 47, Siggi Magg GK 355 og að lokum Reynir GK 355.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

2 athugasemdir á “Reynir GK 47

Skildu eftir svar við Hafþór Hreiðarsson Hætta við svar