
Óðinn Magnason tók þessa mynd á dögunum þegar nýr togari Loðnuvinnslunnar hf., Ljósafell SU 70, kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í fyrsta skipti.
Ljósafellið, sem leysir af hólmi Japanstogarann Ljósafell, hét áður Þórunn Sveinsdóttir VE 401 og var smíðað í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen árið 2010.
Togarinn var lengdur um 6,6 metra í sömu skipasmíðastöð árið 2019 og mælist eftir það 929 brúttótonn að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution