Smábátar við flotbryggju í Húsavíkvíkurhöfn

Smábátar við flotbryggju í Húsavíkurhöfn sumarið 2001.

Hér gefur að líta smábáta við flotbryggju í Húsavíkurhöfn sumarið 2001 og spurning hvort þetta sé ekki fyrsta flotbryggjan í höfninni.

Þegar þessi mynd var tekin var komin önnur flotbryggja fyrir framan Gamla Bauk.

Í Degi þann 15. júní 1995 segir svo frá:

Hafnarstjórn á Húsavík hefur fest kaup á flotbryggu frá Rifósi í Kelduhverfi. Bryggjan verður sett út frá hafnarstéttinni en þar þarf að dýpka áður. Einnig þarf að endurbæta bryggjuna og auka við búnað og verður það gert hjá Vélaverkstæðinu Múla.

Viðlegupláss fyrir 12 báta verður við bryggjuna og að auki rými við bryggjuhausinn fyrir tvo báta sem gerðir veröa út til skemmtisiglinga.

Bryggjan var keypt fyrir 300 þúsund en reiknað er mcð að framkvæmdirnar kosti í heildina 1-1,5 milljónir.

Í Morgunblaðinu segir í lok ágústmánaðar 1996 að ný flotbryggja hafi verið tekin í notkun í Húsavíkurhöfn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd