Breki VE 61 í ólgusjó

2961. Breki VE 61. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Nýjasta skip Eyjaflotans, Breki VE 61, kom til hafnar í Vestmannaeyjum síðdegis í dag og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. Skipið var afhent Vinnslustöðinni í Kína 13. mars 2018 og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti þann 6. maí sama ár. Það var ólíkt … Halda áfram að lesa Breki VE 61 í ólgusjó

Börkur NK 122 í vari á Donegalflóa

2865. Börkur NK 122 ex Malen S. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Það er slæmt veður á kolmunnamiðunum við Írland og spáin fyrir næstu daga er ljót.  Ekki er gert ráð fyrir að fari að lægja fyrr en undir helgi eða á fimmtudag eða föstudag. Frá þessu er sagt á heimasíðu Síldarvinslunnar sem sló á þráðinn … Halda áfram að lesa Börkur NK 122 í vari á Donegalflóa

Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun

1062. Kap II VE 7 ex Kap II VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Netabáturinn Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. Kap II VE 7 var smíðuð í Stálvík árið 1967 og hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177. Í Magna, blaði framsóknarmanna á Akranesi, sagði … Halda áfram að lesa Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun

Ingmundson að draga netin við Lofoten

Ingmundson. Ljósmynd Svafar Gestson 2019. Svafar Gestsson tók þessa mynd af netabátnum Ingmundsson draga netin í blíðskaparveðri í morgun. Fjöldi báta var út af suðurströnd Lofoten, þar sem eru gjöful fiskimið á vetrarvertíðinni. Um Ingmundson er það að segja að hann er 10 metra langur og 4 metra breiður. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Ingmundson að draga netin við Lofoten

Maggý VE 108 kemur að landi í morgun

1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Dragnótabáturinn Maggý VE 108 kom til löndunar í Vestmannaeyjum og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. 1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Maggý var smíðuð í Póllandi 1988 og hét upphaflega Skálavík SH 208 úr Ólafsvík. Báturinn … Halda áfram að lesa Maggý VE 108 kemur að landi í morgun

Sléttbakur EA 304

2550.Sléttbakur EA 304 ex Sevryba 2.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA keypti Sléttbak í marsmánuði árið 2002 af SISL-Sevr­y­ba Two Lim­ited en hann var smíðaður í Orskov Shipy­ard í Dan­mörku árið 1998. Sléttbakur EA 304, síðar EA 4, var, 58 metra langur og 13,5 metra breiður og með 4.000 hestafla aðal­vél. Sléttbakur var vel tækj­um búið skip … Halda áfram að lesa Sléttbakur EA 304

Frár VE 78 af stað á ný

1595. Frár VE 78 ex Frigg ve 41. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frár VE 78 lét úr höfn í Vestmannaeyjum í dag eftir um þriggja mánaða stopp. Frár VE 78 var smíðaður í Campeltown í Skotlandi árið 1977 fyrir Færeyinga og hét Von. Keyptur til Vestmannaeyja 1981 og fékk nafnið Helga Jóh. VE 41. Báturinn … Halda áfram að lesa Frár VE 78 af stað á ný