
Hér má sjá tvo síldarbáta sem höfðu Reykjavík sem heimahöfn þegar myndin var tekin og annar þeirra miklu mun lengur.
Þriðji báturinn sem er lengst tv. gæti hafa verið í eigu Haraldar Böðvarssonar & co á Akranesi, Höfrungur III ?
Sá fjórði er eiginlega of langt til að nokkur maður, nema þá helst Óskar Franz, geti sagt hver hann var.
Báturinn sem siglir í átt að Dagfara ÞH, en þaðan var myndin tekin, er Þorsteinn RE 303 sem var einmitt systurskip Dagfara. Aftan við hann í bak er Gísli Árni RE 375. Þorsteinn heitir í dag Kristín GK 457 og er gerð út af Vísi hf. í Grindavík til línuveiða.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Þessi mynd er virkilega skemtileg.Var Eggert Gíslason ekki með Þorstein fyrstu vertiðina meðan Guðbjörn Þorsteinsson var í stýrimannskólanum.
Líkar viðLíkar við