Jón Garðar GK 475

989. Jón Garðar GK 457. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jón Garðar GK 475 kom nýsmíðaður til landsins 23. júlí árið 1965 og var þá stærsti síldarbátur landsins. Í 7. tbl. Faxa það ár sagði svo frá: Stærsti bátur síldarflotans. Föstudaginn 23. júl. í sumar kom til landsins stærsti síldarbátur íslenzka flotans, Jón Garðar, GK 475, eigandi … Halda áfram að lesa Jón Garðar GK 475

Kolbeinsey ÞH 10

1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Sigfús H. Jónsson. Kolbeinsey ÞH 10 var smíðuð fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri. Kolbeinsey var gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom hún 10. maí sama ár. Kolbeinsey var eins og segir í upphafi fyrst í eigu Höfða hf. því næst í eigu … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10

Hraunsvík GK 75 í kröppum sjó

1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Enn er leitað í myndir Jóns Steinars Sæmundssonar í Grindavík en nú er það Hraunsvík GK 75 í innsiglingunni til Grindavíkur. Myndirnar tók Jón Steinar í gær þegar Hraunsvíkin kom að landi eftir að hafa skotist út og lagt netin þrátt fyrir þungan … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 75 í kröppum sjó

Guðrún Jakobsdóttir EA 144

1968. Guðrún Jakobsdóttir EA 144 ex María Pétursdóttir VE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Guðrún Jakobsdóttir EA 144 var gerð út af Snudda ehf. á Dalvík á árunum 2005-2006 og landaði m.a á Húsavík í september 2006. Upphaflega hét báturinn á Íslenskri skipaskrá Arnar KE 260 og var gerður út frá Keflavík. Smíðaður árið 1987 … Halda áfram að lesa Guðrún Jakobsdóttir EA 144

Nonni ÞH 9 tekinn á land

6705. Nonni ÞH 9 ex Nonni SU 16. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Trausti heitinn Jónsson gerði út um 12 ára skeið handfærabátinn Nonna ÞH 9 sem er af gerðinni Skel 26. Á myndinni hér fyrir ofan er hann að undirbúa það að taka bátinn á land eftir skaksumarið 2006. Þórður Sigurðsson frá Sunnuhvoli er mættur … Halda áfram að lesa Nonni ÞH 9 tekinn á land

Valentina í höfn á Húsavík

Valentina ex Nicola. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Valentina er í Húsavíkurhöfn í dag og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið, sem áður hét Nicola, var smíðað árið 2000 og er 95,16 metrar að lengd. Breiddin er 13,17 metrar og mælist skipið 2,998 GT að stærð. Valentina siglir undir flaggi Antigua & Barbuda og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Valentina í höfn á Húsavík

Guðmundur Jónsson ST 17

2571. Guðmundur Jónsson ST 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Línubáturinn Guðmundur Jónsson ST 17 er hér að færa sig á milli bryggja í Hólmavíkurhöfn í ágúst 2018. Báturinn var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2003 og er af gerðinni Seigur 1160 og mælist 11,2 brl./14,9 BT að stærð. Það er Sæfar ehf. á … Halda áfram að lesa Guðmundur Jónsson ST 17