Gnúpur seldur til Rússlands

1579. Gnúpur GK 11 ex Guðbjörg ÍS 460. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Gnúpur lagði úr höfn í Grindavík um hádegisbil í dag, að öllum líkindum í síðasta sinn en hann hefur verið seldur til Rússlands. Fyrst siglir Gnúpur til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp áður en hann fer utan. Gnúpur sem … Halda áfram að lesa Gnúpur seldur til Rússlands

Sólborg við bryggju

1359. Sólborg SU 202. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér liggur Sólborg SU 202 við bryggju á Fáskrúðsfirði milli hátíða prýdd jólastjörnu. Myndin var tekin af Hreiðari Olgeirssyni um 1990. Báturinn hét upphaflega Sturlaugur II ÁR 7 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar h.f. á Ísfirði og afhentur í febrúar árið 1974. Hann var 138 brl. … Halda áfram að lesa Sólborg við bryggju

Geiri Péturs á jólum

1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geiri Péturs hinn fyrsti prýddur jólaljósum í Húsavíkurhöfn um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Báturinn, sem var í eigu Korra hf., var í flota Húsvíkinga frá ársbyrjun 1980 fram á sumarið 1987. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Geiri Péturs á jólum

Vöttur SU 3

1125. Vöttur SU 3 ex Kristján Guðmundsson ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessum myndum sést Eskifjarðarbáturinn Vöttur SU 3 koma að landi í Grindavík um árið. Báturinn var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi og afhentur á árinu 1968. Upphaflega bar nafnið Palomar T-22-SA en árið 1970 keypti … Halda áfram að lesa Vöttur SU 3

Jón Kjartansson

155. Jón Kjartansson SU 111 ex Narfi RE 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Kjartansson SU 111 liggur hér við bryggju á Eskifirði að haustlagi um miðjan níunda áratug síðsutu aldar. Jón Kjartansson hét upphaflega Narfi RE 13 og var smíðaður 1960 sem síðutogari í  Nosbiskrug skipasmíðastöðinni í Rensburg í Vestur-Þýskalandi. Hann var smíðaður fyrir Guðmund … Halda áfram að lesa Jón Kjartansson

Grindvíkingur GK 606

2600. Grindvíkingur GK 606 ex Hardhaus II. Ljósmynd Sigmar Ingólfsson. Grindvíkingur GK 606 var keyptur frá Noregi árið 2003 af Þorbirni-Fiskanesi hf. í Grindavík. Grindvíkingur hét áður Hardhaus II og var 64,5 metra langur og 12,6 metra breiður. Smíðaður 1997. Vorið 2004 var Grindvíkingur GK 606 seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Guðmundur … Halda áfram að lesa Grindvíkingur GK 606

Vinna við nýja Börk á áætlun

2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Karl Jóhann Birgisson 2020. Þeir Karl Jóhann Birgisson og Jóhann Pétur Gíslason vélstjóri hafa dvalið í Skagen í Danmörku í tvo og hálfan mánuð þar sem þeir hafa fylgst með framkvæmdum um borð í nýjum Berki sem er í smíðum hjá Karstensens Skibsværft. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að þeir félagar … Halda áfram að lesa Vinna við nýja Börk á áætlun