Runólfur SH 135

173. Runólfur SH 135. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Runólfur SH 135 liggur hér við bryggju á Siglufirði vel hlaðinn af síld en myndina tók Siglfirðingurinn Hannes Baldvinsson Þessi bátur heitir Sigurður Ólafsson SF 44 í dag en hann var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu … Halda áfram að lesa Runólfur SH 135

Ilivileq kom til Reykjavíkur í dag

IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201 við komuna til Reykjavíkur í dag. Ljósmynd Magnús Jónsson. Frystitogarinn Ilivileq GR 2-201, sem er í eigu dótturfélags Brims á Grænlandi, kom til hafnar í Reykjavík í hádeginu í dag. Magnús Jónsson tók þessar myndir við komuna. Togarinn var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni.  Á vef … Halda áfram að lesa Ilivileq kom til Reykjavíkur í dag

Gísl lóðs GK 130

62. Gísli lóðs GK 130. Ljósmynd Margeir Margeirsson 1963. Gísli lóðs GK 130 er hér að ljúka við að háfa úr síldarnótinni en myndina tók Margeir Margeirsson árið 1963. Gísli lóðs GK 130 var smíðaðurárið 1961 í Danmörku fyrir Jón Gíslason útgerðarmann í Hafnarfirði. Í Morgunblaðinu 1. desember 1961 sagði svo frá komu Gísla lóðs … Halda áfram að lesa Gísl lóðs GK 130

Sævík GK 757 dregur línuna á Staðarbrúninni

2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla. GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Sævíkin GK 757 var að draga línuna á Staðarbrúninni rétt vestan Grindavíkur í dag þegar Jón Steinar sendi drónann í myndatökutúr nú um miðjan daginn. Jón Steinar segir á síðu sinni: Þeir voru þarna að klára að draga þennan daginn en þeir … Halda áfram að lesa Sævík GK 757 dregur línuna á Staðarbrúninni

Aþena með rúm 80 tonn af grásleppu

2436. Aþena ÞH 505 ex Sigurvon ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppubáturinn Aþena ÞH 505 frá Húsavík lauk veiðum í gær eftir að hafa klárað sína 44 daga en kallarnir lögðu netin þann 19. mars síðastliðinn. Þrátt fyrir rysjótt tíðarfar í byrjun var góður og stöðugur afli allan tímann og afraksturinn var 80.331 kg. … Halda áfram að lesa Aþena með rúm 80 tonn af grásleppu