Arney KE 50 á siglingu

1416. Arney KE 50 ex Ásborg EA 259. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Arney KE 50 sem hér sést á siglingu hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var í eigu samnefnds fyrirtæki á Hellisandi. Skarðsvík SH 205 var smíðuð árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi, hún hafði smíðanúmer 620. Hún var fjórða … Halda áfram að lesa Arney KE 50 á siglingu

Bliki EA 12 á toginu

2286. Bliki EA 12 ex Nataarnaq. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjutogarinn Bliki EA 12 frá Dalvík var keypur frá Grænlandi árið 1997 af samnefndu fyrirtæki á Dalvík. Bliki EA 12 var og er systurskip Júlíusar Havsteen ÞH 1 sem í dag heitir Sóley Sigurjóns GK 200. Togararnir voru smíðaðir fyrir Grænlendinga í Hvide Sand í Danmörku … Halda áfram að lesa Bliki EA 12 á toginu

Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn

939. Magnús SH 11 ex Halldóra Jónsdóttir ÍS 99. Ljósmynd Þórður Birgisson. Hér liggur Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn á milli Egils SH 195 og Jökuls SH 15. Magnús SH 11 hét upphaflega Öðlingur VE 202 og  var smíðaður í Danmörku 1957. Hann var 52 brl. að stærð, með 265 hestafla Alpha aðalvél. Eigendur hans … Halda áfram að lesa Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn

Jónína ÍS 930

2142. Jónína ÍS 930 ex Glóðanes. Ljósmynd Sigfús Jónsson. Línubáturinn Jónína ÍS 930 var keypt til Íslands frá Klakksvík í Færeyjum sumarið 1991 en þar hét báturinn Glóðanes. Það var Brimnes hf. á Flateyri sem keypti bátinn en hann var smíðaður árið 1988 hjá Moen Slip og Mekanisk Verksted A/S, í Kolvereid í Noregi. Jónína … Halda áfram að lesa Jónína ÍS 930

Friðgeir Björgvinsson RE 400

1851. Friðgeir Björgvinsson RE 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Friðgeir Björgvinsson RE 400 var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ og hafði smíðanúmer 35 hjá stöðinni. Báturinn, sem smíðaður var fyrir Helga Friðgeirsson í Reykjavík, var afhnetur frá skipasmíðastöðinni 18. desember 1987. Hann var sérstaklega útbúinn til línuveiða með Mustad línuvélasamstæðu eins og segir í 10. tbl. … Halda áfram að lesa Friðgeir Björgvinsson RE 400

Maí TH 194

Maí TH 194. Mynd úr safni Helga Árnasonar. Maí TH 194 var smíðaður á Akureyri 1955, af Nóa bátasmið, og var 8 brl. að stærð búinn 44 hestafla Kelvin díselvél. Eigendur frá 10. júlí 1956 voru Pálmi Héðinsson, Sigtryggur Brynjólfsson, Helgi Árnason, Kristján St. Jónsson og Halldór Þorvaldsson. Báturinn fórst á Axarfirði 21. október 1959 … Halda áfram að lesa Maí TH 194

Dagatalið er komið út

993. Náttfari og 260. Garðar við bryggju á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Dagatal Skipamynda fyrir árið 2020 er komið úr prentun og er þetta í ellefta skipti sem það kemur út. Eins og sjá má á myndinni fyrir ofan sem tekin var í dag er vetrarveður á landinu, ef einhver hefur ekki tekið … Halda áfram að lesa Dagatalið er komið út

Ný skip við bryggju í Hafnarfirði

2965. Bárður SH 81, 2962. Vörður ÞH 44. 2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Magnús Jónsson tók þessa mynd í Hafnarfirði fyrir helgi en hún sýnir þrjú af nýjustu skipum flotans. Bárður SH 81 er nýkominn til landsins en hann var smíðaður í Danmörku og Gjögursbátarnir Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48 … Halda áfram að lesa Ný skip við bryggju í Hafnarfirði

Bergur VE 44 á miðunum í dag

2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í morgun af togaranum Bergi VE 44 þar sem hann var á toginu fyrir austan land. Bergur VE 44 var smíðaður í Danmörku árið 1998 en Bergur ehf. keypti hann til landsins frá Noregi haustið 2005. Bergur VE 44, … Halda áfram að lesa Bergur VE 44 á miðunum í dag

Samskip Skaftafell og Seifur

IMO 9164562. Samskip Skaftafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Samskip Skaftafell kom til Akureyrar í dag og naut aðstoðar hafnsögubátsins Seifs þegar komið var að Fiskihöfninni. Samskip Skaftafell var smíðað árið 2000 og siglir undir fána Antigua & Barbuda með heimahöfn í Saint John´s. Skipið er 101 metrar að lengd og breidd þess 19 metrar. … Halda áfram að lesa Samskip Skaftafell og Seifur