
Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í morgun af togaranum Bergi VE 44 þar sem hann var á toginu fyrir austan land.
Bergur VE 44 var smíðaður í Danmörku árið 1998 en Bergur ehf. keypti hann til landsins frá Noregi haustið 2005. Bergur VE 44, sem er 569 BT að stærð, hét Brodd 1 og var gerður út frá Álasundi. Hann er 36 metrar að lengd og breiddin er 10,50 metrar.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution