Gengur vel hjá nýjum skipstjóra á Hoffelli

2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Á vef Loðnuvinnslunnar segir í dag að í brúnni á Hoffelli sitji Sigurður Bjarnason, nýráðinn skipstjóri,  og sigli í land með 790 tonn af makríl.  Er þetta fyrsti makríltúr Sigurðar á Hoffellinu.  "Þegar greinarhöfundur heyrði í Sigurði var Hoffellið úr af Berufirði og reiknaði skipstjórinn með … Halda áfram að lesa Gengur vel hjá nýjum skipstjóra á Hoffelli

Dagmar Aaen á Skjálfanda 2011

Dagmar Aaen á Sail Húsavík 2011. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég las viðtal við þýska heimskautafarann og landkönnuðurinn Arved Fuchs í Fiskifréttum í morgun. Það rifjaði upp skemmtilegan dag á Skjálfandaflóa í júlímánuði 2011. Þá stóð yfir siglingahátíðin Sail Húsavík 2011 og þennan dag var m.a kappsigling seglskipa á dagskránni. Myndin af ofan er ein fjölmargra mynda … Halda áfram að lesa Dagmar Aaen á Skjálfanda 2011

Abrela við bryggju

IMO 9208978. Abrela 3a-VI-5-9-99 ex Minchos Sexto. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér liggur spænski togbáturinn Abrela við bryggju innarlega í Vigoflóanum. Myndin var tekin í gær. Abrela, sem er með heimahöfn í Celeiro, var smíðaður árið 1999 og mælist 245 GT að stærð. Lengd hans er 30 metrar og aðalvélin 430 hestöfl. Celeiro er á … Halda áfram að lesa Abrela við bryggju

Eyrún ÁR 66

1315. Eyrún ÁR 66 ex Eyrún GK 157.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún ÁR 66 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Hríseyinga og hét Eyrún EA 157. Nýsmíði nr. 44 hjá stöðinni og var báturinn afhentur 11. júlí árið 1973. Báturinn var 24 brl. að stærð og smíðaður úr eik. Eigendur voru Árni Kristinsson skipstjóri, Mikael … Halda áfram að lesa Eyrún ÁR 66

Coimbra við bryggju í Reykjavík

IMO 7228091 Coimbra A-2204-N. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Magnús Jónsson tók þessa mynd fyrr í sumar af portúgalska skuttogaranum Coimbra þar sem hann lá í Reykjavíkurhöfn. Coimbra var smíðður árið 1973 og er með heimahöfn í Aveiro. Hann mælist 1,592 GT að stærð. Lengd hans er 80,32 metrar og breiddin er 12,55 metrar. Með því … Halda áfram að lesa Coimbra við bryggju í Reykjavík

Sæljón RE 19

1499. Sæljón RE 19 ex Flosi ÍS 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæljón RE 19 kemur til hafnar í Reykjavíkum miðjan níunda áatug síðustu aldar, sennilega haustið 1985. Báturinn hét upphaflega Flosi ÍS 15 og er 29 brl. að stærð. Flosi var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1977. Báturinn, sem smíðaður var fyrir … Halda áfram að lesa Sæljón RE 19

Blængur NK 125 gerði það gott í Barentshafinu

1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hákon U. Seljan Jóhannsson 2019. Frystitogari Síldarvinnslunnar, Blængur NK 125, kom til Neskaupstaðar úr Barentshafinu í morgun.  Á heimasíðu Síldarvinnlsunnar segir að skipið hafi haldið til veiða frá Neskaupstað hinn 3. júní sl. og hóf veiðar hinn 8. júní. Það var 29 daga á veiðum og … Halda áfram að lesa Blængur NK 125 gerði það gott í Barentshafinu

Ocean Endavour á Húsavík

Ocean Endavour við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Farþegaskipið Ocean Endavour var á Húsavík í gær og tók Gaukur Hjartarson þessa mynd af skipinu við Bökugarðinn. Ocean Endavour siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau. Það var smíðað árið 1982 og mælist 12,907 GT að stærð. Lengd skipsins er 137,1 metrar og breidd þess … Halda áfram að lesa Ocean Endavour á Húsavík

Alvarez Rosales og A Gago koma að landi

Alvarez Rosales kemur að landi í Chapela. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Vinnubátarnir sem notaðir eru við skelræktina á Vigoflóa eru margir og af ýmsum stærðum og gerðum. Í hádeginu komu tveir þeirra til hafnar í Chapela og sýnist mér þetta vera flaggskipin þeirra hér í bæ. Bátarnir heita Alvarez Rosales og A Gago og tók … Halda áfram að lesa Alvarez Rosales og A Gago koma að landi