
Eins og sagði hér á síðunni í gær var stefnt að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línuskip sem er á myndunum færi á flot í dag.
Og það gekk eftir því hinn nýi Páll Jónsson GK 7 var sjósettur hjá Alkorskipasmíðastöðinni í morgun.
Sem fyrr var það Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis hf. sem tók myndir og gaf leyfi fyrir birtingu þeirra hér á síðunni.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution