
Þessar myndir sem nú birtast voru teknar þegar línubáturinn Háey I ÞH 295 kom til hafnar á Raufarhöfn, sem er hennar heimahöfn.
Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út en hann hóf veiðar í lok síðasta árs. Fyrst um sinn var landað á Húsavík en síðan farið í Breiðafjörð og þaðan suður fyrir Reykjanes.
Það var svo sl. föstudag sem Háey I ÞH 295 kom fyrst til löndunar í sinni heimahöfn. Í dag var þriðja löndun hennar þar og var aflinn um 13 tonn.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution