
Nýr Páll Jónsson GK 7 er óðum að taka á sig endanlega mynd í Alkorskipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi.
Stefn er að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línuskip fari á flot á morgun.
Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis hf. tók þessar myndir og gaf leyfi fyrir birtingu þeirra hér á síðunni.

Hinn nýi Páll Jónsson GK 7 er fyrsta nýsmíðin sem Vísir hf. fær í sögu fyrirtækisins.

Þetta nýja línuskip mun leysa af hólmi Pál Jónsson GK 7 sem smíðaður var í Hollandi árið 1967 og hét upphaflega Örfirisey RE 14.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution