1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Dragnótabáturinn Ísey ÁR 11 kom til hafnar í Grindavík undir kvöld og Jón Steinar tók á móti henni með myndavélina á lofti. Ísey ÁR 11 er í eigu Saltabergs ehf. sem nýverið endurnefndi bátinn sem áður hét Kristbjörg ÁR 11. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Ísey ÁR 11 kemur til hafnar í dag
Day: 31. mars, 2019
Þengill ÞH 114
1099. Þengill ÞH 114 ex Kópur ÞH 114. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Hér eru bræðurnir Guðjón og Kristján Björnssynir að draga línuna á Þengli ÞH 114 sem þeir áttu og gerðu út ásamt Herði Arnórssyni. Þengill ÞH 114 var smíðaður á Akureyri árið 1970 fyrir Gest Halldórsson á Húsavík sem nefndi bátinn Kóp ÞH 114. … Halda áfram að lesa Þengill ÞH 114
Lómur HF 177
2279. Lómur HF 177 ex Quaqqaliaq. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjufrystitogarinn Lómur HF 177 er hér á toginu um árið á rækjuslóðinni. Togarinn var keyptur frá Grænlandi árið 1997 og kom til landsins í febrúar það ár eins og segir í 3. tbl. Ægis 1997: Nýr rœkjutogari með frystibúnaði, m/s Lómur HF 177, bœttist við flota … Halda áfram að lesa Lómur HF 177
Karoli kom með salt til Grindavíkur
Karoli ex Nina. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Flutningaskipið Karoli kom fyrir helgina með saltfarm til Grindavíkur og tók Jón Steinar þessar myndir í gær þegar uppskipun var í fullum gangi. Það eru starfsmenn HP Gáma sem sjá um uppskipun á saltinu í geymslu fyrirtækisins, þaðan sem þeir svo dreifa því til viðskiptavina víðsvegar á Reykjanesskaganum … Halda áfram að lesa Karoli kom með salt til Grindavíkur
Jón Kjartansson SU 111
155. Jón Kjartansson SU 111 ex Narfi RE 13. Ljósmynd Sigfús H. Jónsson. Jón Kjartansson SU 111 siglir hér inn Skjálfandaflóa með fjöllin í baksýn, m.a eitt sem ber ein þrjú nöfn. Jón Kjartansson Su 111 hét upphaflega Narfi RE 13 og var smíðaður 1960 sem síðutogari í Nosbiskrug skipasmíðastöðinni í Rensburg í Vestur-Þýskalandi. Hann … Halda áfram að lesa Jón Kjartansson SU 111




