Pioner við Bökugarðinn

Pioner við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Rússneska flutningaskipið Pioner kom til Húsavíkur snemma í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Pioner kom hingað fyrir tæpu ári og þá skrifaði ég: Skipið var smíðað 1997 og er með heimahöfn í  Arkhangelsk. Lengd þess er 103 metrar og breiddin 16 metrar. Skráð 3893 GT … Halda áfram að lesa Pioner við Bökugarðinn

Sigurður VE 15

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Gundi 2015. Um miðjan marsmánuð árið 2015 var Frosti ÞH 229 á útleið frá Grundarfirði og þá komst Gundi í tæri við Sigurð VE 15. Hann tók þessar myndir af Sigurði sem Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum sumarið … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15

Júpíter RE 161

161. Júpíter RE 161 ex Gerpir NK 106. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Júpíter RE 161 er hér að rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi, skömmu fyrir 1990. Júpíter RE 161 hét upphaflega Gerpir NK 106 og var smíðaður í Þýskalandi fyrir 1960 fyrir Bæjarútgerð Neskaupsstaðar. Gerpir NK 106 var seldur Júpíter h/f í Reykjavík árið 1960 og fékk … Halda áfram að lesa Júpíter RE 161

Bjarnarey NS 7

198. Bjarnarey NS 7. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Hérna sjáum við Bjarnarey NS 7 á mynd Hannesar Baldvinssonar sem hann tók á Siglufirði á síldarárunum. Bjarnarey var einn tappatogaranna svokölluðu sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-9. Í Degi sagði svo frá þann 16. desember 1959: Hingað til Akureyrar kom á mánudaginn … Halda áfram að lesa Bjarnarey NS 7

Gunnar Bjarnason SH 122

2462. Gunnar Bjarnason SH 122 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Alfons Finnsson. Gunnar Bjarnason SH 122 er einn Kínabátanna svokölluðu sem smíðaðir voru árið 2001 í Dalian skipasmíðastöðinni í samnefndri borg í Kína. Gunnar Bjarnason SH 122 hét upphaflega Rúna RE 150 frá Reykjavík en í janúar árið 2005 fær hann nafnið Ósk KE 5 … Halda áfram að lesa Gunnar Bjarnason SH 122

Western Rock á Húsavík

Western Rock. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Flutningaskipið Western Rock kom til Húsavíkur í marsmánuði 2018 með tæki og tól fyrir Eimskip. Um var að ræða þann búnað sem notaður er til að þjónusta kísilver PCC á Bakka en Eimskip sér um þann verkþátt sem snýr að upp- og útskipun. Western Rock er glænýtt skip sem var … Halda áfram að lesa Western Rock á Húsavík