Fri Bergen kom að bryggju í morgun

IMO 9361122. Fri Bergen ex Rachel. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Norska flutningaskipið Fri Bergen kom að bryggju á Húsavík í morgun eftir að hafa lónað á Skjálfanda frá því í gær. Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka er skipað upp. Eins og kom fram í færslu í gær var skipið smíðað … Halda áfram að lesa Fri Bergen kom að bryggju í morgun →

Dagfari og Náttfari

1470. Dagfari - 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það er bræla á Skjálfanda í dag og hér liggja saman við bryggju hvalaskoðurbátar Norðursiglingar, Dagfari og Náttfari. Gömul og góð bátanöfn í útgerðarsögu Húsavíkur. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Dagfari og Náttfari →

Grímsnes GK 555

1849. Grímsnes GK 555 ex Fúsi SH 162. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grímsnes GK 555 frá Grindavík kemur hér að landi í Njarðvík sumarið 2004 en báturinn var gerður út af samnefndu fyrirtæki. Báturinn heitir Dýrfiskur ÍS 96 í dag og er þjónustubátur við fiskeldi. En upphaflega hét hann Neptúnus NS 8 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 →

Heimaey VE 1

1035. Heimaey VE 1 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Heimaey VE 1 hét upphaflega Náttfari ÞH 60 og var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Náttfari kom nýr til heimahafnar á Húsavík í aprílmánuði árið 1967 og skipstjóri á honum var Pétur Stefánsson. Náttfari var lengdur og yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 →

Landað í morgunblíðunni

2370. Sigrún Hrönn ÞH 36. - 2783. Ásdís ÞH 136. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og segir hér í færslunni á undan kom grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 með góðan afla til hafnar á Húsavík í gærkveldi. Þegar hafist var handa við að landa úr bátnum í morgun kom að landi, og undir hinn kranann, strandveiðibáturinn … Halda áfram að lesa Landað í morgunblíðunni →

Ásdís ÞH 136

2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var góður dagur í dag á Ásdísi ÞH 136 sem stundar grásleppuveiðar frá Húsavík. Báturinn kom að landi í kvöld með á sjöunda tonn en verið var að draga í fyrsta skipti þessa vertíðina. Áður höfðu kallarnir stundað grásleppuveiðar á öðrum … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136 →