
Strandveiðibáturinn Laxinn við bryggju á Húsavík nú síðdegis, Reynir Hilmars að taka olíu fyrir næsta róður.
Laxinn var smíðaður árið 1978 í Mótun og af þeirri gerð báta sem kölluðust Færeyingar. Það ku vera mjög lítið eftir af upprunalega bátnum en hann hefur verið stækkaður og endurbyggður.
Upphaflega hét báturinn Ungi EA 228, var 2,17 brl. að stærð og búinn 20 hestafla Bukhvél.
Frá árinu 1982 hefur báturinn heitið Laxinn, fyrst EA 478 og síðan ÁR 9, ÍS 49, ÍS 109 og loks GK 177.
Eins og áður segir hefur báturinn verið endurbyggður og mælist nú 3,58 brl. að stærð, í honum er 177 kw. Yanmarvél frá 2003.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution