2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Einar Guðnason ÍS 303 var sjósettur í Hafnarfirði í dag en hann var smíðaður hjá Trefjum fyrir Norðureyri ehf. á Suðureyri við Súgandafjörð. Einar Guðnason ÍS 303 er af gerðinni Cleopatra 50 en nánar verður sagt frá bátnum síðar. 2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmyndir Magnús … Halda áfram að lesa Einar Guðnason sjósettur í dag
Month: desember 2020
Freyr ÁR 102
11. Freyr ÁR 102 ex Freyr ÓF 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freyr ÁR 102 siglir hér svona nýskveraður og fínn á ytri höfninni í Reykjavík en hann var að koma inn í höfn eftir kompásstillingu. Freyr ÁR 102, sem var gerður út af Skipar h/f, hét upphaflega Arnfirðingur RE 212 og var smíðaður í Bolsönes … Halda áfram að lesa Freyr ÁR 102
Ásta VE 2
442. Ásta VE 2 ex Þórdís Guðmundsdóttir VE 141. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ásta VE 2 hét upphaflega Frosti SH 181 og var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1962. Heimahöfn Frosta var Stykkishólmur. Þaðan fór báturinn, sem var 12 brl. að stærð, til Grundarfjarðar árið 1969. Hann hélt nafni, einkennisstöfum og númeri. Árið 1976 er … Halda áfram að lesa Ásta VE 2
Bergur landaði á Dalvík í gær
2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2020. Skuttogarinn Bergur VE 44 landaði á Dalvík í gær en hann hefur landað þar og á Akureyri að undanförnu. Eins og kom fram á síðunni í haust keypti Bergur-Huginn hf. Útgerðarfélagið Berg ehf. í Vestmannaeyjum. Bergur VE 44 var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen … Halda áfram að lesa Bergur landaði á Dalvík í gær
Sylvía ljósum prýdd
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljómynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hérna liggur Sylvía ljósum prýdd í Húsavíkurhöfn en hún er í eigu Gentle Giants sem einnig á Fald ásamt flota Ömmubáta af RIB gerð. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía ljósum prýdd
Tryggvi Eðvarðs seldur til Hríseyjar
2800. Tryggvi Eðvars SH 2. Ljósmynd Afons Finnsson. Línubáturinn Tryggvi Eðvars SH 2 hefur verið seldur Hrísey Seafood ehf. í Hrísey en þaðan verður báturinn gerður út. Tryggvi Eðvars SH 2 var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði fyrir Útgerðarfélagið Nesver ehf. á Rifi og var afhentur í desember árið 2010. Hann er af gerðinni Cleopatra … Halda áfram að lesa Tryggvi Eðvarðs seldur til Hríseyjar
Við Húsavíkurhöfn
Við Húsavíkurhöfn síðdegis þann 8. desember 2020. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var kyrrt og fallegt veður við Húsavík núna síðdegis og því tilvalið að njóta þess og því ekki við myndatökur. Hér birtist ein myndann en þarna má sjá hluta bátaflota Norðursiglingar auk þess sem línubáturinn Karólína ÞH 100 var að taka olíu við bryggjuendann. … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn
Hrönn í slipp
306. Hrönn EA 258 ex Hrönn ÓF 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrönn EA 258 er hér í slipp á Húsavík um árið enn hún átti eftir að koma oft upp í hann síðar meir. Báturinn, sem er 19 brl. að stærð, var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA 157 … Halda áfram að lesa Hrönn í slipp
Akraberg AK 65
2765. Akraberg AK 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Akraberg AK 65 var smíðað hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf. árið 2007 og er það af gerðinni Seigur 1120. Akraberg var skráð SI 90 árið 2010 og fluttist heimahöfnin frá Akranesi á Siglufjörð. Árið 2013 er það skráð ÓF 90 ogheimahöfn Ólafsfjörður. Akraberg ÓF 90 var selt … Halda áfram að lesa Akraberg AK 65
Guðni Ólafsson VE 606
2466. Guðni Ólafsson VE 606. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Línuskipið Guðni Ólafsson VE 606, sem sést hér nýkomið til landsins, var smíðað í Kína fyrir Ístún hf. í Vestmannaeyjum. Skipið kom til heimahafnar í fyrsta skipti um miðjan febrúar árið 2002. Í Morgunblaðinu fimmtudaginn 21. febrúar sagði m.a svo frá komu skipsins: Guðni Ólafsson VE 606, … Halda áfram að lesa Guðni Ólafsson VE 606









