
Skuttogarinn Bergur VE 44 landaði á Dalvík í gær en hann hefur landað þar og á Akureyri að undanförnu.
Eins og kom fram á síðunni í haust keypti Bergur-Huginn hf. Útgerðarfélagið Berg ehf. í Vestmannaeyjum.
Bergur VE 44 var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1998 en var keyptur hingað til lands árið 2005. Togarinn er 569 brúttótonn að stærð og með 1.300 hestafla vél.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.
