Þorkell Árnason GK 21

1231. Þorkell Árnason GK 21 ex Hafalda SU 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorkell Árnason GK 21 úr Garðinum er á þessum myndum sem teknar voru á mismunandi tímum að koma til hafnar í Sandgerði en þaðan var hann lengstum gerður út. Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupsstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. … Halda áfram að lesa Þorkell Árnason GK 21

Elín SH 170

6859. Elín SH 170. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Elín SH 170 var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1987 og er tæpar 6 brl. að stærð. Báturinn er í eigu Beiti ehf. og er með heimahöfn í Stykkishólmi en upphaflega var hann smíðaður fyrir Kristinn Gestsson þar í bæ. Báturinn hefur verið í eigu … Halda áfram að lesa Elín SH 170

Dala Rafn VE 508

1379. Dala Rafn VE 508 ex Ölduljón VE 120. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Dala Rafn VE 508 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur. Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. … Halda áfram að lesa Dala Rafn VE 508

Síldin AK 88

1774. Síldin AK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Síldin AK 88 var smíðuð fyrir Guðjón Gíslason í Bátastöðinni Knörr ehf. á Akranesi árið 1987. Báturinn , sem var rétt innan við 10 brl. að stærð, var einn af mörgum bátum sömu gerðar sem Körr smíðaði á þessum tíma. Síldin var gerð út frá Akranesi til ársins … Halda áfram að lesa Síldin AK 88

Margrét HF 148

1331. Margrét HF 148 ex Margrét SI 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Margrét HF 148 hét Árni Gunnlaugs ÍS 32 og var smíðaður fyrir Bolvíkinga árið 1973 í Bátalóni í Hafnarfirði.  Eigendur Árna Gunnlaugs ÍS 32, sem var 11 brl. að stærð voru Sverrir Sigurðsson og Friðberg Emanúelsson. Báturnn var seldur til Vestmannaeyja árið 1976 þar … Halda áfram að lesa Margrét HF 148

Sigurður Þorleifsson GK 256

1333. Sigurður Þorleifsson GK 256 ex Jóhann Guðnason KE 77. Ljósmynd Þór Jónsson. Sigurður Þorleifsson GK 256 hét upphaflega Fjölnir ÍS 177 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1973. Fjölnir var smíðaður fyrir Sæbjörgu hf. á Þingeyri og var sjósettur þann 19. október 1973 ásamt Garðari II SH 164 frá Ólafsvík. Fjölnir ÍS … Halda áfram að lesa Sigurður Þorleifsson GK 256