Hafbjörg EA 23 á leið inn Skjálfandann

62. Hafbjörg EA 23 ex ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hafbjörg EA 23 frá Hauganesi siglir hér inn Skjálfandann um árið en hún var gerð héðan út til úthafsrækjuveiða um tíma. Eigandi og útgerð Auðbjörg s/f á Hauganesi við Eyjafjörð.

Hafbjörg EA 23 hefur áður komið við sögu á síðunni þar sem stiklað var á stóru í sögu hennar en hún var smíðuð í Danmörku árið 1961 og hét upphaflega Gísli lóðs GK 130.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd