Kristbjörg ÞH 44 að dragnótaveiðum á Skjálfanda

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson 1986.

Þessar myndir af Kristbjörgu ÞH 44 tók Pétur Helgi Pétursson, þá skipverji á Geira Péturs ÞH 344, vorið 1986.

Þennan dag var Geiri Péturs að koma úr Breiðafirðinum eftir afar gjöfula netavertíð en við á Kristbjörginni stunduðum dragnótaveiðar heima fyrir á meðan. Það fiskaðist það vel í flóanum að ekkert varð úr því að farið yrði á netin.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd