
Nú birtast hér nokkrar myndir sem voru teknar haustið 2017 þegar Björg EA 7 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri.
Björg EA 7, sem er í eigu Samherja hf., kom til Akureyrar eftir siglingu frá Tyrklandi þann 31. október. Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra systurskipa sem smíðuð voru hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent á árinu 2017.
Kaldbakur EA 1 kom fyrstur, síðan Björgúlfur EA 312 og því næst Drangey SK 2 og að lokum Björg EA 7 eins áður segir.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution

