
Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést í slipp í Hafnarfirði, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972.
Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri.
Jósef Geir ÁR 36 sökk að morgni 26. marz 1991 suðaustur af Þorlákshöfn. Áhöfninni, sjö mönnum, var bjargað um borð í Fróða ÁR 33 .