Sunnuberg NS 199

1002. Sunnuberg NS 199 ex Sunnuberg GK 199. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sunnuberg NS 199 hét upphaflega Gísli Árni RE 375 og var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík í Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi árið 1966.

Gísli Árni var 355 brl. að stærð búinn 700 hestafla Wichmann aðalvél. Báturinn var endurmældur árið 1970 og mældist þá 296 brl. að stærð.

Hann var lengdur og yfirbyggður árið 1973 og mældist eftir það 336 brl. að stærð. Árið 1977 var skipt um aðalvél og kom 1500 hestafla Wichmann í stað þeirrar sem áður var.

Gísli Árni RE 375 var seldur til Grindavíkur árið 1988 og fékk nafnið Sunnuberg GK 199. Kaupandi Fiskimjöl & lýsi hf. í Grindavík.

Sunnubergið var selt til Vopnafjarðar í ársbyrjun 1996 en fjórum árum áður hafði verið skipt um brú á skipinu.

Það hélt nafninu og varð NS 199.

Árið 1999 var Sunnubergið selt til Raufarhafnar þar sem það fékk nafnið Arnarnúpur ÞH 272. Árið 2000 var skipið komið í eigu SR Mjöls á Siglufirði.

Sunnuberg var selt úr landi árið 2004 og var þá í eigu Síldarvinnslunnar.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

1002….Gísli Árni RE 375… TF-EH.
Skipasmíðastöð: Kaarbös Mekaniske Verksted A/S. Harstad. Noregi. 1966.

1970 = Brúttó: 355. U-þilfari: 251. Nettó: 169.
Lengd: 36,97. Breidd: 7,83. Dýpt: 3,69.

Nýskráður 02.06.1966.
Endurb. 1977 og brúnni lyft.

Mótor 1965 Wichmann 7 ACA. 700 hö.
Ný vél 1977 Wichmann 5.AX. 1103 kw. 1500 hö.

Gísli Árni RE 375. Útg: Sjóli h.f. Reykjavík. (1966 – 1988).
Gísli Árni RE 375. Útg: Fiskimjöl og Lýsi h.f. Grindavík. (1988).
Sunnuberg GK 199. Útg: Sigluberg h.f. Grindavík. (1988 – 1995).

Sunnuberg GK 199. Útg: Bjarnarey ehf. Vopnafirði. (1995 – 1997).
Sunnuberg NS 199. Útg: Tangi h.f. Vopnafirði. (1997 – 1998).
Arnarnúpur ÞH 272. Útg: Jökull h.f. Raufarhöfn.(1998 – 2000).

Arnarnúpur ÞH 272. Útg: SR. Mjöl. Siglufirði. (2000 – 2003).
Arnarnúpur ÞH 272. Útg: Síldarvinnslan h.f. Neskaupstað. (2003 – 2004).
Seldur úr landi 10.02.2004.

Sikuk. Útg: Iceberg Canada Cord. Canada. Höfn: St.Johns. Nýfundnalandi. (2004 – 2009).
Sikuk. Útg: Iceberg Canada Cord. Canada. Höfn: Kingstown í St. Vincent & The Grena.(2009 – 2021).
Fer í brotajárn í Mars 2021.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd