
Línubáturinn Garðey SF 22 frá Hornafirði kemur hér til löndunar á Húsavík um árið en upphaflega hét báturinn Þorsteinn RE 303.
Þorsteinn var smíðaður í Boizenburg í Austur-Þýskalandi árið 1965.
Síðar bar báturinn nöfnin Þorsteinn RE, Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur SU, Lýtingur NS, Vigdís BA, Haraldur EA, Ásgeir Guðmundsson SF og Atlanúpur ÞH þangað til hann fékk nafnið Garðey SF og loks Kristín GK eftir að Vísir eignaðist hann.
2008 varð Kristín ÞH 157 með heimahöfn á Húsavík, eigandi Vísir hf.
Árið 2014 fékk báturinn aftur einkennisstafina GK og númerið 457. Eigandi Vísir hf. og heimahöfnin Grindavík.
Kristín heitir Steinn GK 65 í dag og er í eigu Skipaþjónustu Íslands.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution