
Vörður ÞH 4 kemur hér til hafnar í Grindavík um árið en hann var smíðaður fyrir Gjögur hf. í Noregi árið 1967. Nánar tiltekið í Hommelvik.
Í Morgunblaðinu 28. apríl 1967 var sagt frá komu Varðar til heimahafnar:
Nýtt stálfiskiskip Vörður ÞH 4, kom í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Grenivíkur, aðfaranótt miðvikudags. Eigandi skipsins er Gjögur hf. á Grenivík, en framkvæmdastjóri félagsins er Guðmundur Þorbjarnarson.
Skipið er smíðað í Hommelvik í Þrændalögum. Það er 248 lestir að stærð með 800 hestafla Lister diesel aðalvél og tvær 80 ha.ljósavélar.
Það er búið öllum nýjustu og fullkomnustu siglingar og fiskileitartækjum og hefur síldardælur um borð.
Ganghraði í reynsluferð var 11,9 mílur, en meðalhraði á heimsiglingu var 11,3 mílur.
Árið 1979 var skipt um aðalvél í Verði og kom 800 ha. Mirrlees Blackstone í stað Listervélarinnar. Tveim árum síðar var byggt yfir bátinn.
Árið 1987 fór báturinn í breytingar hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík sem fólust m.a í því að ný brú var sett á hann, skutnum slegið út ofl. varðandi togveiðar.
Vörður var seldur í brotajárn til Danmerkur og tekinn af skipaskrá í nóvember árið 2007 en fyrr á árinu hafði nýr og glæsilegur Vörður EA 748 leyst hann af hólmi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution