
Auðbjörg HF 97 liggur hér við bryggju á Skagaströnd en þessa skráningu hefur báturinn borið frá því í júlí árið 2025.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem báturinn, sem er 64 brl. að stærð, ber nafnið Auðbjörg því hann var gerður út á sínum tíma frá Ólafsvík undir nafninu Auðbjörg II SH 97.
Lengi vel hét báturinn Grímsey ST 2 en upphaflega hét hann Sigurbjörg SU 88 og var smíðaður í Hollandi árið 1955.
Önnur nöfn sem hann hefur borið eru Sigurbjörg GK 527, Sólborg GK 527, Sigurjón Helgi SU 15, Ársæll SH 88 og Benni Vagn ÍS 96.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution