541. Kristbjörg ÞH 44 ex Hallsteinn EA 130. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér kemur sú næsta úr rammanum hans afa en hún sýnir Kristbjörgu ÞH 44, þá fyrstu af fjórum. Báturinn var smíðaður í Danmörku 1934 og hét upphaflega Ægir GK 8, 22 brl. að stærð, og var úr Garðinum. Síðar hét hann Hersteinn ÁR, Hersteinn … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44, sú fyrsta
Month: maí 2019
Njörður ÞH 44 við bryggju á Húsavík
699. Njörður ÞH 44 ex Njörður TH 44. Ljósmynd úr safni HH. Hér kemur fyrsta myndin af þrem sem héngu saman í ramma uppi á vegg hjá afa mínum, Olgeir Sigurgeirssyni útgerðarmanni á Húsavík. Hér sjáum við fyrsta bát þeirra Skálabrekkufeðga við bryggju á Húsavík. Njörð ÞH 44, sem þeir keyptu af Sigurbirni Sigurjónssyni ofl. … Halda áfram að lesa Njörður ÞH 44 við bryggju á Húsavík
Prospect kom með hráefni fyrir PCC á Bakka
Prospect ex CFL Prospect við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Flutningaskipið Prospect kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinun þar skipað var upp hráefni fyrir PCC á Bakka. Pospect var smíðað árið 2007 í Peters Shipyards í Hollandi og er 118,4 metra langt og 13,35 metra breitt. Mælist 4,106 BT að stærð. … Halda áfram að lesa Prospect kom með hráefni fyrir PCC á Bakka
Helga María AK 16 leigð til hafrannsókna við Grænland í sumar
1868 Helga María AK 16 ex Haraldur Kristjánsson HF 2. Ljósmynd Þór Jónsson. HB Grandi undirritaði samning í vikunni um leigu á ísfisktogaranum Helgu Maríu, ásamt 11 manna áhöfn, til Grønlands Naturinstitut. Á heimasíðu HB Granda hf. segir að þar verði skipið við hafrannsóknir á hafsvæðinu við Grænland í 3 mánuði í sumar. Grænlendingarnir eru … Halda áfram að lesa Helga María AK 16 leigð til hafrannsókna við Grænland í sumar
Jón Finnsson GK 506
1283. Jón Finnsson GK 506 ex Havbas. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Jón Finnsson GK 506 liggur hér í höfn í Reykjavík sumarið 1974 og senn skal haldið í Norðursjóinn. Liggur utan á Sigurði RE 4. Jón Finnsson GK 506 var í eigu Gauksstaða h/f í Garði og var keyptur frá Noregi árið 1972. Hann var … Halda áfram að lesa Jón Finnsson GK 506
Við bryggju í Þorlákshöfn
Bátar við bryggju í Þorlákshöfn á níunda áratug 20. aldarinnar. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson. Hér koma tvær myndir sem Ágúst Guðmundsson tók í Þorlákshöfn á níunda áratug síðustu aldar og sýna báta við bryggju. Á efri myndinni get ég mér til að séu eftirtaldir bátar, efst eru 542.Hólmsteinn ÁR 20, 925.Helguvík ÁR utan á. 670.Greipur SH … Halda áfram að lesa Við bryggju í Þorlákshöfn
Ásgeir RE 60 í Reykjavíkurhöfn sumarið 1974
1026. Ásgeir RE 60. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Ásgeir RE 60 liggur hér við bryggju í Reykjavík sumarið 1974 en þá klár til síldveiða í Norðursjó. Myndina tók Leifur Hákonarson. Ásgeir RE 60 var smíðaður fyrir Ísbjörninn h/f í Deest í Hollandi árið 1966. Í Morgunblaðinu 24. desember það ár sagði svo frá komu Ásgeirs … Halda áfram að lesa Ásgeir RE 60 í Reykjavíkurhöfn sumarið 1974
Freyja II ÍS 401 við bryggju á Súgandafirði
525. Freyja II ÍS 401. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Freyja II ÍS 401 er hér við bryggju á Suðureyri við Súgandafjörð upp úr 1960. Hvaða bátur er utan á honum hef ég ekki upplýsingar um. Freyja II ÍS 401 var smíðuð 1954 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði fyrir Fiskiðjuna Freyju hf. Suðureyri Súgandafirði. Báturinn … Halda áfram að lesa Freyja II ÍS 401 við bryggju á Súgandafirði
Jumbo Jubilee kominn með skrokkana til Brattvåg
Jumbo Jubilee við bryggju í Brattvåg. Ljósmynd Gjögur hf. 2019. Flutningaskipið Jumbo Jubilee kom til hafnar í Brattvåg í Noregi í gærmorgun með skrokkana fjóra sem smíðaðir voru í Víetnam fyrir íslenskar útgerðir. Skipið flutti Vörð ÞH 44, Áskel ÞH 48, Steinunni SF 10 og Þinganes SF 25 þessa löngu leið en siglingin hófst þan … Halda áfram að lesa Jumbo Jubilee kominn með skrokkana til Brattvåg
Björgúlfur og Akurey
2892. Björgúlfur EA 312 kemur til hafnar í Hafnarfirði í gær. Ljósmynd Óskar Franz. Hér birtast myndir af tveim skuttogurum sem smíðaðir voru í Tyrklandi fyrir íslendinga en þó ekki í sömu stöðinni. Óskar Franz tók myndirnar i gær, 1. maí. Björgúlfur EA 312 var smíðaður fyrir Samherja hf. í Cemre-skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi. … Halda áfram að lesa Björgúlfur og Akurey









