
Hér koma tvær myndir sem Ágúst Guðmundsson tók í Þorlákshöfn á níunda áratug síðustu aldar og sýna báta við bryggju.
Á efri myndinni get ég mér til að séu eftirtaldir bátar, efst eru 542.Hólmsteinn ÁR 20, 925.Helguvík ÁR utan á. 670.Greipur SH 7, 1054 Júlíus ÁR 111 utan á, 784.Narfi ÁR 20, 1639. Dalaröst ÁR 63 og 1245. Stokksey ÁR 50 utan á henni.

Á þessari mynd get ég mér til að séu efst 1414. Gulltoppur ÁR 321, 1315.Eyrún ÁR 66 utan á, 1075. Hásteinn ÁR 8, 1266.Jósef Geir ÁR 36 utan á, 323. Jóhanna ÁR 206, í miðjunni 221. Brynjólfur ÁR 4 og ystur 951. Hafnarvík ÁR 113.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Ég er 99 % Viss um að það sem þú segir vera Hólmstein sé Jóhanna. Kv. Raggi Emils
Líkar viðLíkar við
Já ég var búinn að breyta því, sá strax að þetta var ekki Hólmsteinn. Það voru stögin í frammastri stálarans hinum megin sem ruglaði mig 🙂
Líkar viðLíkar við