Faxavík GK 727

1354. Faxavík GK 727 ex Fiskanes NS 37. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Faxavíkin frá Grindavík togar hér um árið en upphaflega hét báturinn Múli ÓF 5.og var smíðaður á Akureyri árið 1974.

Báturinn var smíðaður árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta á Akureyri og mældist 36 brl. að stærð. 

Um bátinn má lesa nánar hér en hann bar nafnið Faxavík árin 1981 til 1988. GK 373 undir það síðasta.

Í dag er báturinn skonnortan Hildur í eigu Norðursiglingar á Húsavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd