Arnar SH 157

162. Arnar SH 157 ex Sólrún EA 351. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Arnar SH 157 hét upphaflega Ólafur Trygvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f á Hornafirði.

1976 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fær nafnið Hringur GK 18. Kaupendur Aðalsteinn og Helgi Einarssynir og Ingimundur Jónsson. Hringur var lengdur 1978.

Seldur til Dalvíkur árið 1980 og þar fær hann nafnið Bliki EA 12, Yfirbyggður og skipt um brú 1985 að mig minnir.

Síðar fékk hann nöfnin Arnar ÁR 55, Sólrún EA 351, Arnar SH 157 og Fiskaklettur HF 123 áður en hann var seldur til Noregs.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd