Sólbakur EA 7

2262.Sólbakur EA 7 ex Rauðinúpur ÞH 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Sólbakur EA 7 kemur hér að bryggju á Akureyri í byrjun júnímánaðar árið 2005 og Sjómannadagshelgin var framundan.

Sólbakur heitir í dag Sóley Sigurjóns GK 200 og er gerður út af Nesfiski ehf. í Garði á Reykjanesi.

Togarinn var smíðaður árið 1987 af J.K Skibsbyggeri APS í Danmörku fyrir Grænlendinga og hét Quaasiut II.

Togarinn hét upphaflega Júlíus Havsteen ÞH 1 á íslenskri skipaskrá og var fyrstu árin hér gerður út á rækju og fryst um borð en lengst af hefur hann verið ísfisktogari.

Hann hefur einnig borið nöfnin Rauðinúpur ÞH 160 og Sólbakur RE 207.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd