Kristbjörg ÞH 44 kemur að landi

1009. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Kristbjörg ÞH 44 er hér að koma að landi á Húsavík um árið enda bræla á miðunum. Kristbjörg ÞH 44 hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi. Sóley … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 kemur að landi

Jónas Hjörleifsson VE 10

560. Jónas Hjörleifsson VE 10 ex Sílavík SF 134. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jónas Hjörleifsson VE 10 var í eigu Harðar Ársæls Ólafssonar í Vestmannaeyjum og síðar Vorboðans hf. þar í bæ. Báturinn sem upphaflega hét Helgi ÍS 97, var smíðaður í Hafnarfirði 1962 úr eik og furu. Hann var 8 brl. að stærð og búinn … Halda áfram að lesa Jónas Hjörleifsson VE 10

Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi

1476. Hjalteyrin EA 306 ex Björgúlfur EA 312. í fjarska er 1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð. Þessar myndir sem nú birtast tók Hólmgeir Austfjörð í Jökuldýpi í vikunni en þar voru togarar að fiska vel. Einn af þeim var gamli Björgúlfur EA 312 sem nú heitir Hjalteyrin EA 306. Togarinn var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi

Sigurbjörg BA 155

2575. Sigurbjörg BA 155 ex Sigurbjörg ST 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Sigurbjörg BA 155 kom til Húsavíkur í ágústmánuði árið 2003 og var erindið að gera við rækjutrollið. Sigurbjörg var upphaflega ST 55 en bar einkennisstafina BA og númerið 155 um tíma en varð síðan aftur ST 55. Sigurbjörg var í eigu Sigurbjargar Jónsdóttur … Halda áfram að lesa Sigurbjörg BA 155