1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Grindvíkingur GK 606 er á þessari mynd Hreiðars Olgeirssonar frá því haustið 1982- eða 3. Í 8. tbl. Ægis árið 1978 sagði m.a um Grindvíking GK 606: 30. maí s.l. bættist nýtt nótaveiðiskip við flota landsmanna, m/s Grindvíkingur GK-606, sem þá kom til heimahafnar sinnar, Grindavíkur, í fyrsta … Halda áfram að lesa Grindvíkingur GK 606
Month: janúar 2019
Bjarni Ólafsson AK 70
1504. Bjarni Ólafsson AK 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þessa mynd af Bjarna Ólafssyni AK 70 tók Hreiðar Olgeirsson skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44 haustið 1982 eða 1983. Þá stundaði Kristbjörg síldveiðar með lagnet og landaði m.a á Vopnafirði. Um Bjarna Ólafsson AK 70 sagði m.a í 4. tbl. Ægis árið 1978: 9. janúar s.l. bættist … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70
Áskell Egilsson
1414. Áskell Egilsson ex Ási ÞH 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Áskell Egillsson á siglingu á Eyjafirði sumarið 2017. Upphaflega Vöttur SU 3 smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1975. Vöttur SU 3 hét síðar Vinur EA 80, Aðalbjörg II RE 236, Gulltoppur ÁR 321, Haförn ÞH 26, loks Ási ÞH 3. Árið 2017 … Halda áfram að lesa Áskell Egilsson
Anna EA 305
2870. Anna EA 305 ex Carisma Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Línuskipið Anna EA 305 siglir hér inn til Hafnarfjarðar vorið 2016. Anna EA 305 er gerð út af Útgerðarfélagi Akureyringa ehf. en hún var keypt hingað til lands árið 2013. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er … Halda áfram að lesa Anna EA 305
Sæborg ÞH 55
2069. Sæborg ÞH 55 ex Ólöf Ásdís SI 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Sæborg þessi sem hér sést var gerð út af Hraunútgerðinni á Húsavík um tíma en upphaflega hét hún Ólafur HF 251. Smíðaður 1990 hjá Mótun í Hafnarfirði. Sæborg ÞH 55 var keypt til Húsavíkur árið 2009 frá Siglufirði þar sem hún hét … Halda áfram að lesa Sæborg ÞH 55
Skálaberg ÞH 244
923. Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Skálaberg ÞH 244 er hér á siglingu á Skjálfandaflóa í júlímánuði 1987. Báturinn sigldi til móts við nýjan Geira Péturs ÞH 344 sem var að koma frá Noregi. Eftirfarandi skrifaði ég árið 2006: Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda … Halda áfram að lesa Skálaberg ÞH 244
Kristín ÞH 157
972. Kristín ÞH 157 ex Kristín GK 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Kristín ÞH 157 kemur hér að landi á Húsavík þann 21. október árið 2010. Kristín ÞH 157 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303. Síðar bar báturinn nöfnin Þorsteinn RE, Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur SU, Lýtingur … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 157
Um borð í Ottó N
Um borð í Ottó N Þorlákssyni VE 5 í janúar 2019. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð. Það er vetrarlegt um að lítast þessa dagana og það á líka við út á miðunum þar sem sjómennirnir okkar draga björg í bú. Þessar myndir sem hér birtast tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 frá Vestmannaeyjum … Halda áfram að lesa Um borð í Ottó N
Náttfari RE 59
1652. Náttfari RE 59 ex Álsey VE 502. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Náttfari RE 59 lætur hér úr höfn á Húsavík vorið 2003 en Pétur Jónsson ehf. gerði hann út á úthafsrækju um tíma. Upphaflega Halkion VE 105, smíðaður í Gdansk í Póllandi 1984. Síðar varð hann Álsey VE 502, þá Náttfari RE 59 og … Halda áfram að lesa Náttfari RE 59
Guðbjörg ÍS 14
TFUV. Guðbjörg ÍS 14. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Guðbjörg ÍS 14 var smíðuð árið 1956 á Ísafirði fyrir Hrönn h/f þar í bæ og var 47 brl. að stærð. Frá nóvembermánuði 1959 hét báturinn Guðbjörg ÍS 46 og síðar Hrönn ÍS 46. Sumarið 1963 kaupir Karl Karlsson í Þorlákshöfn Hrönn ÍS 46 sem varð ÁR … Halda áfram að lesa Guðbjörg ÍS 14









