
Þessar myndir voru teknar 30. ágúst 2003 af Reykjaborg RE 25 koma til hafnar í Reykjavík.
Ekki var hún þó að koma úr róðri því allnokkur hópur manna var þarna um borð. Og báturinn nýmálaður og fínn og Bugtin handan við hornið.

Reykjaborg RE 25 var smíðuð á Ísafirði 1998, og lengd 2001. Síðar seld til Keflavíkur þar sem hún varð KE 6. Fékk síðar nafnið Geir KE 6.
Því næst fékk báturinn nafnið Arnþór GK 20 og var í eigu Nesfisks í Garði.
Agustson ehf. í Stykkishólmi keypti Arnþór GK 20 sumarið 2017 og fékk hann nafnið Leynir SH 120.
Leynir SH 120 er 21,88 metrar að lengd og mælist 72 brl./107 BT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.