
Hér liggur Gunni RE 51 við bryggju á Grandanum um árið en til Reykjavíkur var báturinn keyptur árið 1984.
Báturinn hét upphaflega Stefán Rögnvaldsson EA 345 frá Dalvík og var smíðaður í Bátalóni árið 1973.
Stefán Rögnvaldsson var seldur út í Grímsey árið 1981 og þar fékk hann nafnið Nunni EA 87. Tveim árum síðar var Nunni kominn til Grindavíkur og orðinn GK 161
Árið 1984 fær báturinn það nafn sem hann ber á myndinni, Gunni RE 51. Skipt var um stýrishús og hann gerður frambyggður árið 1995.
Gunni RE 51 fórst um 4 sjómílur suðvestur af Akranesi þann 14. febrúar árið 2000. Tveggja manna áhöfn var á bátnum og komst annar þeirra lífs af.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution