Staðarey ÍS 351

7458. Staðarey ÍS 358 ex Staðarey SF 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Staðarey ÍS 358 hét upphaflega Guðrún HF 172 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1997.

Síðar það ár fékk báturinn nafnið Díana GK 77 með heimahöfn í Grindavík.

Árið 1999 fékk báturinn nafnið Stormur ÍS 800 með heimahöfn í Bolungarvík en hann var kominn aftur suður ári síðar þar sem hann fékk nafnið Gammur GK 225 með heimahöfn í Njarðvík.

Bátiurinn var seldur til Hornafjarðar árið 2005 þar sem hann fékk nafnið Staðarey SF 15 en frá árinu 2024 hefur Staðarey verið ÍS 358 með heimahöfn á Þingeyri.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd