
Rækjubáturinn Kristján ÍS 122 við bryggju á Húsavík sumarið 1993 ef ég man rétt.
Kristján var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör á Akureyri og afhentur árið 1973.
Á vef Árna Björns Árnasonar, aba.is, segir að báturinn hafi verið smíðaður fyrir Jón Kr. Jónsson og Sæmund Árilíusarson, Ísafirði. Þeir seldur hann smíðaárið til Flateyrar án nafnbreytingar og síðan til Bolungarvíkur 1979 einnig án nafnbreytingar.
Árið 1995 fór báturinn til Ísafjarðar og fékk þar nafnið Örn ÍS 18. Frá árinu 1999 hefur báturinn heitið Örn ÍS 31 og ber það nafn enn í dag.
Skráður eigandi bátsins í dag er Nostalgía ehf.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution