Arney KE 50

1014. Arney KE 50 ex Ársæll Sigurðsson GK 320. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Arney KE 50 leggur hér úr höfn á Húsavík áleiðis austur á firði til síldveiða undir stjórn Húsvíkingsins Óskars Þórhallssonar. Alltaf þótt þetta frekar góð mynd þó ég segi sjálfur frá tekin á fyrstu 35 mm. filmuvélina mína.  Arney hét upphaflega Ársæll … Halda áfram að lesa Arney KE 50

Röst SK 17

1009. Röst SK 17 ex Kristbjörg ÞH 44 . Ljósmynd Christian Schmidt 2012. Christian Schmidt leiðsögumaður hjá Norðursiglingu tók þessa flottu mynd af Röst SK 17 á Skjálfanda um árið. Þetta var nánar tiltekið í byrjun septembermánaðar 2012 og pabbi og Christian í hvalaskoðun á einum báta Norðursiglingar. Kannaðist sá gamli við bátinn enda skipstjóri … Halda áfram að lesa Röst SK 17

Snæbjörg ÍS 43

1436. Snæbjörg ÍS 43 ex Snæbjörg BA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Snæbjörg ÍS 43 var smíðuð í Sandgerði og afhent árið 1975 og hét upphaflega Hamraborg SH 222 frá Grundarfirði. Hamraborg var smíðuð í Vélsmiðjunni Herði h/f fyrir Ásgeir Valdimarsson, sem var skipstjóri, og Víði Jóhannsson í Grundarfirði. Hún var 38 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Snæbjörg ÍS 43

Wilson Clyde á Húsavík

IMO 9178458. Clyde við Bökugarðinn á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Að undanförnu hafa verið tíðar komur flutningaskipa til Húsavíkur með hráefni fyrir PCC á Bakka. Í dag er Wilson Clyde við Bökugarðinn en skipið var smíðað árið 1998. Hét upphaflega og til októbermánaðar 2001 Dutch Trader. Síðan Admiral Sun til haustsins 2004 og síðan … Halda áfram að lesa Wilson Clyde á Húsavík

Sveinbjörn Jakobsson SH 10

1054. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 ex Sæbjörg ST 7. Ljósmynd Alfons Finnsson. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 kemur hér til hafnar í Ólafsvík um árið. Upphaflega Drífa RE 10 smíðuð hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1967. Báturinn var endurbyggður í Ósey í Hafnarfirði 1997 og fékk nafnið Sæbjörg ST 7. Hann hafði heitið ýmsum … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson SH 10

Skálaberg RE 7

2850. Skálaberg RE 7 ex  Esperanza Del Sur. Ljósmynd Jósef Ægir Stefánsson 2013. Skálaberg RE 7 kom til heimahafnar í Reykjavík í byrjun sumars árið 2013 en Brim h/f hafði keypt togarann haustið 2012 frá Argentínu. Skálabergið var smíðað í Nor­egi 2003 fyr­ir fær­eyskt út­gerðarfé­lag og hét Skálaberg KG 118. Skála­bergið var gert út frá Fær­eyj­um … Halda áfram að lesa Skálaberg RE 7

Börkur NK 122

2865. Börkur NK 122 ex Malene S. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2018. Börkur NK 122 sést hér á loðnumiðunm á síðsut vertíð en myndina tók Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148. Börkur NK 122 hét áður Malene S frá Noregi og var keyptur hingað til lands í febrúar árið 2014. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir … Halda áfram að lesa Börkur NK 122

Sólberg ÓF á Ólafsfirði

2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þessar þrjár myndir sem birtast núna tók ég á Ólafsfirði þegar Sólberg ÓF 1 sigldi inn á fjörðinn eftir heimsiglingu frá Tyrklandi. 19. maí 2017. Þaðan var svo siglt yfir til Siglufjarðar þar sem tekið var á  móti skipinu. 2917. Sólberg ÓF 1 siglir inn með Kleifunum. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF á Ólafsfirði