
Arney KE 50 leggur hér úr höfn á Húsavík áleiðis austur á firði til síldveiða undir stjórn Húsvíkingsins Óskars Þórhallssonar.
Alltaf þótt þetta frekar góð mynd þó ég segi sjálfur frá tekin á fyrstu 35 mm. filmuvélina mína.
Arney hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320, smíðaður Brattvaag í Noregi 1966 fyrir Ársæl s/f í Hafnarfirði.
Hét Ársæll ÁR 66 í restina og fór í pottinn í fyrir nokkru.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.