Ásdís GK 218

2395. Ásdís GK 218 ex Brík BA 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Ásdís GK 218, sem hét upphaflega Brík BA 2, sést hér á þessum myndum sem ég tók á vetrarvertíðinni árið 2009.

Þá efri tók ég í Grindavík en sú neðri var tekin í Sandgerði degi áður eða tveim í Sandgerði. 

Upphaflega Brík BA 2 eins og áður segir , smíðuð á Ísafirði  fyrir Bílddælinga árið 2000. Seld til Suðurnesja árið 2007 og þar fékk hún Ásdísarnafnið. Seldur á Neskaupstað árið 2010 þar sem hann fékk nafnið Inga NK 4. Hún er tæplega 30 brl. að stærð.

Inga NK var seld til Noregs árið 2011 og bar fyrst nafnið Leithe N-8-G með heimahöfn í Bodø.  Árið eftir er skráningunni breytt í N-8-ME en áfram í eigu sama fyrirtækis. Fær nafnið Vea Fisk R-41-K á árinu 2014 og gerð út frá Karmøy. 

2395. Ásdís GK 218 ex Brík BA 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.

Færðu inn athugasemd