
Togskipið Bylgja VE 75 fékk í skrúfuna í vikuni og dró Bergey VE 144 hana til Akureyrar þar sem skorið var úr skrúfunni.
Bylgja VE 75 er gerð út af Vísi hf. í Grindavík þessi misserin en er í eigu Bylgju VE 75 ehf. í Vestmannaeyjum.
Hafnsögubáturinn Mjölnir tók við Bylgjunni af Bergey og kom henni að bryggju. Á sama tíma var Kaldbakur EA 1 að halda á miðin eins og sést á þessum myndum.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.